Bílastæði við Nýja Landspítalann
Bílastæðahús Hvannargötu 2 þjónar Nýja Landspítalanum og er ætlað sjúklingum, aðstandendum, gestum og starfsfólki spítalans. Húsið er rekið af Checkit og telur 503 bílastæði, þar af 6 stæði fyrir hreyfihamlaða. Gjaldskylda gildir allan sólarhringinn.
Greiðsluleiðir
Fyrir almenn bílastæðagjöld eru þrjár leiðir.
- Greiðsluvél
Borga í greiðsluvél á staðnum áður en farið er úr kjallaranum. Tvær greiðsluvélar eru staðsettar við sitthvorn innganginn. - Greiða á netinu
Hægt er að slá inn bílnúmer í greiðslugátt hér neðar á síðunni til að ganga frá ógreiddum heimsóknum með kreditkorti. - Sjálfvirkt í bankann
Check-it sendir aldrei sektir. Ef það er ekki gengið frá greiðslu með ofangreindum leiðum fær eigandi bíls bílastæðagjaldið sent í heimabankann að viðbættu seðilgjald.
Myndavélar lesa og skrá númeraplötu ökutækis við komu og brottför og bílastæðagjald reiknast sjálfkrafa út frá dvalartíma.
ATH! Ef bíllinn er í eigu annars aðila, eins og bílaleigu, geta gjöld bæst við frá þeim aðila sem á bílinn.
Gjaldskrá
Virka daga frá 07:00 - 17:00
390 kr. klukkutíminn
Kvöld 17:00 - 07:00 og helgar
290 kr. klukkutíminn
Sé ekki greitt sendist krafa í heimabanka bíleiganda + 100 kr. seðilgjald.
Gjaldtaka fyrir hverja lagða mínútu
Viðvera undir 15 mínútur er gjaldfrjáls.
Þjónustuborð:
checkit@checkit.is
Þjónustusími 510-0980 er opinn milli 8-16
Greiða fyrir heimsókn að Hvannargötu 2
Bílastæðahúsið við Nýja Landspítalann
Greiðsluleið á netinu fyrir bílastæðahúsið er í vinnslu
Áskriftaleiðir
Hægt er að sækja um áskrift með því að fylla út umsóknarform um bílastæði í Hvannargötu 2. Tvær áskriftarleiðir eru í boði, mánaðarpassi og Næturpassi. Hver áskrift gildir fyrir eitt stæði. Hægt er að skrá einn eða fleiri bíla á áskriftina, svo framarlega sem aðeins einn þeirra er lagður í einu.
- Mánaðarpassi (allan sólarhringinn)
29.500 kr. á mánuði - Næturpassi (17:00–07:00)
19.500 kr. á mánuði