Höfðatorg

Í bílastæðahúsi Höfðatorgs eru alls um 1300 stæði með aðkomu er úr Katrínartúni og frá Þórunnartúni. Stæðin eru ætluð fyrir starfsfólk fyrirtækja við Höfðatorg og viðskiptavini þeirra ásamt íbúum í Bríetartúni 9-11.

Greiðsluleiðir

Fyrir almenn bílastæðagjöld eru þrjár leiðir.

  1. Greiðsluvél
    Borga í greiðsluvél á staðnum áður en farið er úr kjallaranum. Greitt er fyrir þær mínútur sem er lagt.
  2. EasyPark
    Notendur sem eru með virkan aðgang hjá EasyPark geta notað það app til að halda utan um notkun í bílakjallara Höfðatorgs.
  3. Sjálfvirkt í bankann
    Check-it sendir aldrei sektir. Ef það er ekki gengið frá greiðslu með ofangreindum leiðum fær eigandi bíls bílastæðagjaldið sent í heimabankann að viðbættu seðilgjaldi upp á kr. 130.


Engar sektir eru fyrir að greiða ekki á staðnum heldur notast við sjálfvirka skráningu og uppflettingu.
ATH! Ef bíllinn er í eigu annars aðila, eins og bílaleigu, geta gjöld bæst við frá þeim aðila sem á bílinn.

Gjaldskrá

Virka daga frá 8:00 - 22:00
580 kr. klukkutíminn

Kvöld 22:00 - 08:00 og helgar

290 kr. klukkutíminn


Þjónustuver Checkit er opið alla virka daga milli 9 og 16 og svarar öllum fyrirspurnum í gegnum tölvupóstinn checkit@checkit.is

Notendur bílastæðis við Kirkjusand geta notað EasyPark appið fyrir sjálfvirka skráningu inn og út

Greiða fyrir bílastæði á Höfðatorgi

Væntanlegt

Við erum að vinna í nýjum greiðslumöguleika.

Möguleikarnir eru núna:

- Greiða í sjálfsafgreiðslu á staðnum -

- Greiða með EasyPark -

Ef hvorugt er valið sendum við bílastæðareikninginn til eiganda bílsins.

Engar sektir eru innheimtar af okkur en lítið bankagjald (130 kr.) bætist við þegar þessi aðferð er notuð.

Ef bíllinn er í eigu bílaleigufyrirtækis geta gjöld verið bætt við af þeim aðila sem á bílinn.

Fyrirtæki í áskrift

Áskrift mánaðargjald

Rekstraraðili hússins sér um skráningu fyrirtækja í áskrift. Það eru annars vegar ákveðinn stæðafjöldi sem fylgir leigusamning og/eða sérstakir samningar um fjölda stæða í áskrift sem er samið sérstaklega um.


Áskriftarkvóti

Ef bílastæðakvóti fyrirtækja er orðinn fullur þá fara næstu bílar í biðröð eftir að það losni. Bílar utan kvóta falla í almenna gjaldskrá en um leið og losnar pláss færist bíll inn í kvóta sjálfvirkt og almenn rukkun stoppar, hvort sem það er í gegnum EasyPark eða gjald sem er sent í heimabanka. Einungis er greitt fyrir þær mínútur sem bíll er utan kvóta.


Nánar um Höfðatorg, skrifstofur og valkosti er að finna á vefnum hofdatorg.is