Skilmálar - Bílastæðahús hvannargata 2

1. Almennt

1.1. Með því að aka ökutæki inn í bílastæðahús þetta er verið að samþykkja eftirfarandi skilmála.

1.2. Nýr Landspítali ohf. (hér eftir NLSH) annast rekstur Bíla- og tækjahússins við Hringbraut (hér eftir bílastæðahúsið) fyrir hönd ríkissjóðs, sem er eigandi hússins.

1.3. Kvasir lausnir ehf., undir vörumerkinu Check-IT, annast framkvæmd bílastæðaþjónustunnar fyrir hönd NLSH, þ.m.t. skráningu komu og brottfarar ökutækja með sjálfvirkri myndavélagreiningu á númeraplötum, útreikning bílastæðagjalda, greiðslulausnir, innheimtu bílastæðagjalda og öll samskipti vegna notkunar þjónustunnar.

1.4. Aðgangur að bílastæðahúsinu er aðeins heimill ökutækjum sem skráð eru fyrir allt að átta (8) farþega og eru að hámarki 3.500 kg að leyfðri heildarþyngd. Hámarkshæð ökutækja er 2,10 metrar. Óheimilt er að aka ökutæki með eftirvagn inn í bílastæðahúsið. Undanþágur frá þessum takmörkunum eru aðeins heimilar samkvæmt sérstakri heimild NLSH.

1.5. Heimilt er að leggja ökutæki í merkt bílastæði í samræmi við gefnar merkingar og almennar umferðarreglur.

1.6. Í bílastæðahúsinu er notaður sjálfvirkur búnaður sem myndar og greinir skráningarnúmer ökutækja við inn- og útkeyrslu til þess að reikna bílastæðagjöld. Jafnframt eru eftirlitsmyndavélar notaðar til almennrar vöktunar á svæðinu.


2. Persónuvernd

2.1. NLSH er ábyrgðaraðili vinnslu þeirrar persónuupplýsinga sem tengjast framkvæmd bílastæðaþjónustunnar. NLSH meðhöndlar persónuupplýsingar í samræmi við persónuverndarstefnu NLSH sem birt er á vefsíðu félagsins (www.nlsh.is/personuverndarstefna).

2.2. Check-IT annast vinnslu persónuupplýsinga fyrir hönd NLSH sem tengjast framkvæmd bílastæðaþjónustunnar. Upplýsingar um vinnslu persónupplýsinga sem tengjast notkun bílastæðaþjónustunnar, þ.m.t. hvaða upplýsingum er safnað, réttindum einstaklinga, aðgang að gögnum og fleira má nálgast á vefsíðu Check-IT (www.checkit.is/privacy).


3. Gjaldskylda og greiðslur

3.1. Gjaldskylda er í bílastæðahúsinu allan sólarhringinn, alla daga ársins, nema annað sé sérstaklega tekið fram.

3.2. Eigandi og umráðamaður ökutækis bera sameiginlega ábyrgð á greiðslu bílastæðagjalda samkvæmt skilmálum þessum. Sé umráðamaður ekki skráður eigandi ökutækis, eða sé ökutækið í eigu bílaleigu eða fjármögnunarfyrirtækis, hvort sem um skammtíma- eða langtímaleigu er að ræða, takmarkar það ekki ábyrgð samkvæmt skilmálum þessum. Sé ökutæki notað í atvinnuskyni ber vinnuveitandi einnig ábyrgð á þeim skuldbindingum sem af notkun þess leiða.

3.3. Gjald fyrir dvöl ökutækis í bílastæðahúsinu skal greitt eftir gildandi gjaldskrá hverju sinni fyrir brottför hennar úr bílastæðahúsinu. Greiðsla fer fram í sjálfsafgreiðsluvélum sem staðsettar eru við innganga, með sjálfvirkum skuldfærslu- og áskriftarleiðum, eða á vefsvæði Check-IT (www.checkit.is/hvannargata). Greiðandi ber ábyrgð á að rétt skráningarnúmer sé skráð fyrir greiðslunni.

3.4. Sé ekki greitt innan 24 klst. frá brottför fer krafa í heimabanka skráðs eiganda ökutækisins fyrir ógreiddum bílastæðagjöldum að viðbættu 100 kr. seðilgjaldi.

3.5. Sé krafa ekki greidd innan tilskilins greiðslufrests og sem fallin er á eindaga telst hún komin í vanskil. Heimilt er þá skv. gildandi innheimtulögum 95/2008 að fela innheimtuaðila kröfuna fyrir frekari frum- og milliinnheimtu með tilheyrandi tilkynningar og innheimtukostnaði skv. reglugerð 37/2009.

3.6. Ef útakstur ökutækis úr bílastæðahúsinu er hindraður vegna aðstæðna sem rekja má til þriðja aðila, reiknast ekki gjald fyrir þann tíma sem umfram er vegna þeirrar tafar. Viðskiptavinur skal tilkynna um slík atvik til þjónustuvers Check-IT innan tíu (10) daga frá þeim degi sem atvikið átti sér stað.

3.7. Öllum fyrirspurnum og athugasemdum vegna bílastæðaþjónustunnar skal beint til þjónustuvers Check-IT á netfangið checkit@checkit.is. Nánari upplýsingar og greiðsluleiðir má finna á www.checkit.is.

 

4. Reglur og ábyrgðartakmarkanir

4.1. Eigandi og/eða umráðamaður ökutækis bera ábyrgð á að fylgja þeim reglum, merkingum, fyrirmælum og skilmálum sem gilda um notkun bílastæðahússins hverju sinni og skal tryggja að umferð sé ekki hindruð að óþörfu.

4.2. Stöðubrot getur varðað sektum og/eða að ökutæki verði fjarlægt á kostnað eiganda.

4.3. Ökutæki í bílastæðahúsinu eru alfarið á ábyrgð eigandans og/eða umráðamanns meðan á dvöl stendur. NLSH verður því ekki gert ábyrgt fyrir tjóni á ökutæki eða fylgihlutum þess, sem rekja má m.a. til óhappa, skemmdarverka, þjófnaðar eða sambærilegra atvika.

4.4. Eigandi eða umráðamaður ökutækis ber ábyrgð á öllu tjóni sem og nauðsynlegum kostnaði vegna mengunar eða óhreininda sem rekja má til ökutækisins, meðal annars vegna leka olíu eða annarra efna.

4.5. NLSH áskilur sér rétt til að takmarka eða banna aðgang að bílastæðahúsinu gagnvart eiganda og/eða umráðamanni ökutækis, sem gerist ítrekað brotlegur við skilmála þessa, m.a. vegna ógreidda skulda, misnotkunar á aðstöðu eða þjónustu, eða röskunar á starfsemi í bílastæðahúsinu. Slíkar aðgerðir geta einnig tekið til fleiri ökutækja í eigu, umráðum eða notkun sama einstaklings eða lögaðila.

4.6. NLSH áskilur sér rétt til að fjarlægja ökutæki úr bílastæðahúsinu sé eigandi eða umráðamaður þess brotlegur á skilmálum þessum skv. mati NLSH og ræður ekki bót á þrátt fyrir áminningu. Eigandi eða umráðamaður bera ábyrgð á öllum kostnaði sem hlýst af slíkum aðgerðum, þar á meðal kostnaði vegna dráttar, vörslu, innheimtu og annarri nauðsynlegri umsýslu.

4.7. NLSH tilkynnir lögreglu um þjófnað eða önnur refsiverð brot sem félagið verður vart við í bílastæðahúsinu, eftir því sem tilefni er til.